23. nóvember 2006 klukkan 06:27
Róbert Freyr Pétursson
19. nóvember 2006 klukkan 04:29
Ég og Lúther ákváðum í dag að fá okkur sitthvorann pickuppinn.
Nema minns er svartur og hans er Hvítur.. Sem gerir minn aðeins flottari en hans.. Hehe..
Þetta er lúthers.. og já þetta er hann Geiri frændi undir bílnum að tékka hvort pústið sé örrugglega ekki útrunnið!!

Svo er þetta minn ;)

Róbert Freyr Pétursson
11. nóvember 2006 klukkan 03:09
Ég var að fá myndirnar loksins frá Sigurgeiri. Þetta eru eldgamlar myndir.
Hérna er ein mynd af okkur frændunum niðrá bryggju þar sem við dvöldum ófáu dögunum.. Held að þetta sé Sandgerðishöfn. Pabbar okkar áttu bátinn Donna KE. þá.
Svo er það þórsmerkurferðin merkilega hjá okkur félögunum. Við lögðum af stað á föstudegi heimferð átti að vera á sunnudegi en okkur langaði á djammið í kef og létum kellinguna í þórsmörk skutla okkur yfir krossánna með cat stevens í botni. Ég allur í mari eftir að hoppa í tréin:D. Einmitt fyrir og eftir myndir í albúminu hehe. Hérna erum við samt að fara af stað í rútuna. Gömlu góðu í FS mar.. Mér finnst villi ekkert hafa breyst..
Já alveg rétt svo má ekki gleyma þegar geiri kom og sótti okkur í þórsmörk á rollunni... Munaði 0,1 mm að 8 patrólar á 44 tommu hefðu keyrt yfir okkur útaf geiri þurfti að ræða við okkur í aftursætinu. Sem betur fer voru við allir hinir að horfa á veginn.
Svo má ekki gleyma þegar Geiri og Nasi hittu betu rokk niðrí 101.. Hún bloggaði um það á sínum tíma um hvað þeir væru sætir og lét þessaa mynd fylgja...
Róbert Freyr Pétursson
10. nóvember 2006 klukkan 05:48
Róbert Freyr Pétursson
09. nóvember 2006 klukkan 00:42
Komnar inn slatti af myndum bæði eldgamlar og nýjar.... Engin tímaröð samt.. Var ekki pláss fyrir meiri en redda því fljótlega.. Þetta er bara byrjunin...
Róbert Freyr Pétursson
08. nóvember 2006 klukkan 22:56
Fór á Borat á mánudaginn... Hún er feiki góð. Hló nánast allan tímann. Las svo daginn eftir að einhver Tyrki þykist ætla að súa Sasha Baron Cohen(Borat) fyrir að stela "sér" og nota sig sem karakter í Borat. Bara lúði.Þessi náungi á nefnilega svo mikinn þátt í að Borat varð frægur. 
En vá ég hef alltaf verið frekar hrifinn af US&A og er enn.. Það fer bara soldið í taugarnar á mér Bandaríkjamenn eru blindir fyrir öllu sem gerist utan USA. Alltaf gaman að sjá Jay Walk. Þegar Jay leno spyr ofur einfaldra spurninga. Tala nú ekki um spurningar eins og í hvaða heimsálfu er England.. Það er reyndar nóg að spyrja oft um eitthvað í öðru fylki jafnvel annari borg í sama fylki og fólk stendur á gati.. Borat byrjaði í myndinni á að labba uppað fólki niðrá götu og segja Hello i´m new in town I kiss you... tveir eða þrír gjörsamlega fríkuðu út. Ein sagðist ætla að stúta honum ef hann færi ekki. Annar hljóp svona aðeins af stað og þrijði hljóp eins og borat væri með logsuðutæki á eftir honum. Týpísk USA FÓLK? U tell me?
Langar geðveikt að fara til DK.. Kíkja í heimsókn til Einar Núma.. Kannski maður kíki eftir jól or some..Maður fær alltaf svona fýling þegar veðrið verður svona eins og í Síberíu..
Afhverju erum við íslendingar að taka þá í Kýotó sáttmálanum... Það kæmi sér bara ágætlega ef hitastig á jörðinni myndi hækka
. Ég myndi ekki kvarta.. Bara drita niður álverum einhverstaðar þarna í kringum Reyðafjörð og megnið af okkur íslendingum eigum aldrei eftir að sjá þau:)
Ætla svo að reynda troða einhverjum myndum sem ég á inná síðuna.. Gömlum og nýjum.. Tjá bella
Róbert Freyr Pétursson
03. nóvember 2006 klukkan 04:10
Jæja við fórum í trip við strákarnir á laugardaginn og er það vart frásögu færandi.Vilson var búinn að redda rútu handa okkur en eins og ég spáði fyrir um þá svaf hann yfir sig. Átti aðeins að mæta til keflavíkur klukkan 12 en náði að sofa yfir sig þar sem hann datt í'ða á f0studeginum. Jæja við lögðum af stað um hálf eitt leytið en ég auðvitað gleydi gjöfunum sem ég og Geiri gáfum strákunum. Geiri reddaði útprentuðum bolum handa strákunum með nafni okkar aftan á og KefGroup framaná. Það var flott nema Geira bolur var ónýtur því stafirni duttu af áður en hann komst í bolinn:D Það er þar sem ég held að ferðin hafi glatast fyrir frænda mínum. En meira um það seinna. Fyrsti bjórinn var opnaður og Við héldum ferðinni beinustu leið í HFJ því villi var ekki búinn að græja sig til. Svo var keyrt beinustu leið í adrenalíngarðinn. Með þónokkrum pissustoppum á leiðinni þökk sé þvagblöðru sem við skulum bara kalla Gullu frá píkuvík :) Adrenalín garðurinn er á nesjavöllum og þar var allt í snjó sem kom sér afar vel til að kasta snjóbolta í þann sem var í þraut. Fyrsta þrautin var að klífa vegg sem er sirka 5-6 metra hár. Svo fórum við hver og einn uppá svona símastaur.. sem var um 8 metra hár minnir mig.. Þurftum að stíga uppá hann.. Ég hélt ég mundir drulla í buxurnar þegar kom að mér að fara uppá... Tók mig lengstan tímann við mikla gleði strákanna!Þetta var eins breitt og 9 tommu pizza.. Og vaggaði í 8 metra hæð... Svo var það adrenalínrólan ein og hún er kölluð.. Geggjað tæki en erfitt að útskýra... set vidjó af þessu og myndir seinna. Eftir að fórum við í heitann pott á nesbúð. Þar byrjaði frændi minn að missa sig.. Keypti round á liðið... svo vorum við svo svangir að við pöntuðum samloku í pottinn.. Ég bað kallinn að græja samloku með skinkuog osti og grillana. En fuskurinn varð eitthvað vandræðalegur og við segjum honum bara að redda þessu. Hann brosti þá og hljóp inn..Jæja kemur ekki þessi svaka pía af Sænskum aðalsættum með bakkann. En verri helvítis samloku hef ég ekki smakkað, held að kallinn hafi dýft þeim í pottinn áður en við komum þangað... Þær fóru flestar í ruslið.. Svo vippuðum við okkur í sturtu og héldum á Stokkseyri. Þar beið okkar 2-3 kíló af humri og Gulla frá píkuvík fékk sér Lamb.. Fulli gaurinn í hópnum fannst geðveikt sniðugt að smygla inn bjór og hellti honum í vatnskönnuna sem var orðin tóm.. Jónas greyið var að drepast úr hausverk... fékk parkódín. svo til að skola því niður þurfti hann vatn.. Biður þjóninn um vatn.. Ekki vandamálið segir þjónninn. Nema ég stekk á helv.. vatnskönnuna og garga NEI ÞAÐ ER NÓG VATN HÉRNA!!!hélt að þjónnin fengi hjartastopp ... ætlaði ekki að láta nappa okkur á þessum fína veitingastað með BJÓR Í VATSKÖNNUNNI!
Jæja kemur framhald seinna... gara gó!
Róbert Freyr Pétursson
27. október 2006 klukkan 00:42
Skúffubani!!
Jæja ég ákvað að kíkja með geira í morgun í rvk... Fyrst fórum við og keyptum varahluti sem geira vantaði. Borðuðum svo í hádeginu og svo ætluðum við að ná í skúffu.. Ekki svona skúffu sem maður setur í kommóðu heldur pallinn aftan á Hilux... Málið er þannig að geiri fékk gefins Toyota Hilux eldrauðan.. Nú er hann búinn að skipta um bremsur,móglíkúlu,startara,rúður, hitt og þetta og bíllinn alveg að verða eins og nýr.. Bara 1 ltr. af lakki og prestó.. Jæja við fórum inní kópavog á staðinn þar sem skúffan var.. Ég henti mér í hanska og hoppaði út nema Geira tóks að leggja á eina svellið í rvk sem bráðnaði ekki síðan í fyrra og plús stæðsta pollinn í stórreykjavíkursvæðinu. En við rifum í skúffuna og bogruðum henni uppá pall.. En! málið er þannig með Geira að hann þarf alltaf að sýna stóra frænda að littli frændi er svo sterkur og gefur þessu svona auka boost.. Þar sem ég stend í hálkunni og ekki hann þá næ ég ekki að ýta þessu til baka og skúffan flýgur náttlega í jörðina... Geiri var búinn að dæma hana ónýta áður en hún lenti í jörðinni og við rifumst þarna í nokkrar mín þó svo ekkert væri að helv.. skúffunni.. Eftir þetta þá fórum við til mannsins sem átti skúffuna og borguðum honum svo ætluðum við heim. Þegar við vorum komnir á brautina þá fékk geiri þá flugu í hausinn að 90-91 km/klst væri svona líka rosalega góður ferðahraði. Fyrir þá sem ekki vita þá horfir hann yfirleitt ekki á hraðamælirinn né veginn. En telur sig samt vera besta ökumann sem uppi hefur verið frá því að vinur hans dó þegar þeir voru að vinna við skógarhögg í síberíu 1973... Ég var auðvitað að sofna því mér leið eins og ég væri á 50 enhélt mér vakandi við að rífast í honum og segja honum að mælirinn væri vitlaus því bíllinn væri breyttur...Geiri: "Robbi ég er búinn að tékka á mælinum hliðina á bæði transporternum og carinunni!!!!"Alltaf með svör við öllu.. hvort sem þau eru sönn eða ekki. Svo var hann náttlega með miðstöðina á 200 svo sokkurinn sem blotnaði í stöðuvatninu sem hann lagði í myndi þorna. Svo þegar við komum í kef þá þurftum við að vippa skúffunni af bílnum og inní skúr.. Nema hvað geiri kann ekki teamwork og ég reif peisuna mína á skúffunni og að auki þá misstum við hana aftur!!!!!!! En honum tókst að sannfæra sjálfan sig um að þetta væri allt mér að kenna.. Bauð mér bara í slag upp á lofti hjá ömmu og afa!!
Róbert Freyr Pétursson
25. október 2006 klukkan 15:11
Umferð!
Djöfull getur verið þreytandi að keyra í rvk í skólann.. Ég þarf að mæta mánudag,þriðjudag og miðvikudag klukkan 8:15. Ekkert mál með það vakna klukkan 6:30 snúsa til svona 6:50 og kem mér í fötin græja bækurnar og tölvuna í töskuna. Tannbursta mig og hoppa útí bíl. Ef ég legg af stað um 7 leytið þá hitti ég á Háskólabíó um 8 leytið kannski 8:15 ef ég passa mig að fara ekki undir 108.5 km/klst. Ef ég legg af stað 7:15 þá þarf ég að vera mjög heppinn að ná á réttum tíma í tíma. Ég er enga stund að koma mér í hafnafjörð svona tops hálftíma en það tekur rúmlega hálftíma að koma mér frá HFJ í háskólbíó. Bara um leið og maður er kominn hjá KFC í hafnafirði þá er allt STOPP!!!! Meðalhraði 20km/klst!!. Gatnakerfið er í drasli. Ef ég ætti að mæta klukkan 9 í skólann þá þyrfti ég að leggja af stað rúmlega hálftíma fyrr af stað.. Því þá eru ekki ALLIR á leið í vinnu eða skóla... Hverni væri bara að hafa þetta þannig.. Nemar og kennarar mæta í skóla 7, verkamenn og iðnaðarmenn8. skrifstofufólk og verslunarfólk 9og aðrir 10 og svo framvegis.. Afhverju ekki að banna fólki sem er eitt í bíl að keyra á vinstri akrein. Svo ef einhver er lengur af stað af ljósum en 4 sek þá er heimilt að keyra á þau til að koma þeim af stað. Fólk sem lendir í árekstri!!! Hættið að stoppa á Kringlumýrarbrautinni þó svo einhver keyrði aftan á ykkur!!! Það er enginn af fara saka ykkur um að bakka framan á næsta bíl fyrir aftan!!!
Róbert Freyr Pétursson
24. október 2006 klukkan 23:49
Jæja.. þá kom ég mér loksins í það að blogga hérna. Hef einu sinni átt blogg áður og það var með þeim GuLLA og Geira, hét það blogg
www.forsetarnir.blogspot.com.. Held meira að segja að það virki enn.. í gær héldum við strákarnir nokkrir fund heima hjá Gullson og skipulögðum okkar árlegu ferð. Sem var reyndar síðast haldin árið 2004. Þá var farið í bústað og grillað og setið í pottinum í pulsupartý. En samt mjög mikið stuð. Þessi ferð sem verður á laugardaginn. Verðu með allt öðru sniði.. ;) Dagskráin verður einhvernvegin svona..
Um 1200 þá kemur Villi á bílaleigubenzaranum og sækir okkur alla.. (Ekki gleyma handleggnum;)
Svo keyrum við í rvk og hittum þar dræverinn okkar um 1300.
1400 eigum við að vera mættir í þriggja tíma prógramm á nesjavöllum á stað sem heitir Adrenalíngarðurinn. (
www.adrenalin.is) Það er svona fear factor game. Standandi á 10 m súlu ogeinhverja teygjur..hehe
eftir það förum við í sturtu á nesbúð sem er rétt hjá og kannski í pott. Þaðan keyrum við á veitingastaðinn fjöruborðið og borðum humar.(
www.fjorubordid.is) sem er á EYRABAKKA!!! Geiri gat ekki hugsað sér að borða í reykjavík því hann þolir illa að borða innan um fullt af fólki og flautandi bílum. Vildi hafa það kósy við ströndina og láta kveikja varðeld handa okkur..:) Hann er harður hann frændi minn.
Síðan þegar við erum búnir að gúffa í okkur 400gr af humri og fleiri þúsund gr af bjór þá verðu brunað í 101 og slett úr klofunum . Og vonandi komumst við allir heilir útúr því. :)
Róbert Freyr Pétursson